Login
English

Menning og Saga


Bárðardalur og nágrenni eiga sér langa og mikla menningarsögu og allmiklar heimildir eru að finna frá síðari öldum og því úr miklu að moða. Til dæmis má nefna heimildir sem tengjast stórbýlunum Mýri og Stóruvöllum. Með heimildum frá 19. öld er hægt að draga upp afar heildstæða og skýra mynd af mannlífi og menningu í dalnum, t.d. með hjálp dagbóka Jóns Jónssonar frá Mjóadal og gagna Tómasar Jónassonar frá Hróarstöðum sem í nokkur ár bjó í Bárðardal. Einnig átti Stephan G. Stephansson þar heima í þrjú ár áður en hann fór vestur um haf. Vesturfarasaga bárðdælinga er einnig mjög sérstæð og skýr, t.d. Fóru þaðan 40 manns sumarið 1873, helmingurinn til Brasilíu, hinn til Norður Ameríku.

 

Fornbýli - menningarsaga


Þekkt eru forn býli langt suður með Skjálfandafljóti og mun yngri byggð norður á Fljótsheiði. Í Bárðardal er blómleg byggð og löng og mikil menningarsaga. Dalurinn kemur þegar við sögu í afar sérstæðri sögu af Gnúpa-Bárði í Landnámabók og einnig í öðrum fornum sögum.