Fræðasetur
Mörgum finnst eflaust í fyrstu undarlegt að heyra um uppbyggingu alþjóðlegs fræðaseturs í Svartárkoti í Bárðardal en hugmyndin er einmitt sprottin út frá þessari sérstöku staðsetningu Svartárkots en það að vera á mörkum öræfa og mannabyggða gerir staðinn einstæðan. Á annan bóginn höfum við hrikalegar óbyggðir miðhálendisins m.a. sjálft Ódáðahraun – og á hinn bóginn hina merku og fjölbreyttu menningarsögu svæðisins. Þetta bregður sérkennilegum ljóma yfir staðinn og gerir hann að einstaklega forvitnilegu viðfangsefni í nútíma menningarfræðum.
Meiri upplýsingar um fræðasetrið er að finna á ensku hér



